Hér er til staðar nostalgíu- og hugleiðingavefsetur 2002 útskriftarárgangs 4-X bekkjar Menntaskólans á Akureyri
Jólapartý
Sælt veri fólkið!
Rannveig hefur ákveðið að taka að sér að hýsa partý fyrir okkur sauðina um jólin. Stefnan er sett á kvöldið 27. des. kl. 21:00 í Dalsgerði 3c á Akureyri.
Flestir hafa haft eitthvert veður af þessu í gegnum Facebook, en fyrir þá sem eru skynsamari en svo að láta slíkan ósóma trufla sig við dagleg störf set ég þessa tilkynningu hérna inn.
Vonast til að sjá sem flesta.
Tillaga að framhaldsmynd...

Er þessi gaur ekki tilvalin hugmynd að persónu í framhaldsmynd af Scale of the Dragon? Hvað segja leikstjórarnir?
Þetta könnumst við nú allir við:
Tími til að rífa þessa síðu upp...
...og myndir segja meira en 1000 orð

Já gott fólk, í dag er liðið ár og dagur síðan að síðasta færsla rataði hingað inn (án spaugs).
Fyrst og fremst vildi ég ath. hvort einhver skoði þessa síðu lengur? Er einhver grundvöllur til að halda þessari síðu gangandi?
16 júni
Hey, var að frétta að einhver dugnaðarmenni í U bekknum væru búin að koma upp netsíðu fyrir útskriftarammælið okkar í sumar.
Slóðin er www.blog.central.is/ma2002ég ætla að reyna að fá frí til að koma og taka þátt í hátíðarhöldunum enda orðið langt síðan ég hef hitt uppáhalds húsverðina mína þá Jón rauða, Hlyn og Snorra! Hver býður sig fram í skemmtinefnd fyrir hönd eðlisfræðinga, (veit ekki hvort þess þurfi en samt er gott að hafa nokkra svona ef...)
Svo í lokin vil ég bæta því við að lesning minnar nyju flottu
bloggsíðu er óviðunandi svo ég vil nýta tækifærið til að auglýsa hana hér.
hlakka til að sjá ykkur. mig þyrstir í hópfaðmlag
Góðar stundir
Bobby the builder
Köben er...
...skemmtileg! Eins og sést best á svipnum á Gunna hérna !!
Hæ
Vissuð þið að... það hafa verið 4213 heimsóknir á þessa síðu...
Vissuð þið að... það hafa verið skrifaðar einungis 37 greinar í þessum heimsóknum
Núna vitiði öll meðaltalið... þannig ég ætla ekkert að skrifa það hér...
Vissuð þið að... þessi síða varð 2 ára þann
26. júlí síðastliðið... og það var ekki haldið hátiðlegt
Já ég er að fara í próf á morgun og því að reyna að lesa eins mikið af einhverju rugli sem kemur prófuni ekkert við!
Enn að fjölga í hópnum
Til hamingju Egill með litlu dúllurnar. Ég hitti mömmu þína um daginn og hún sagði mér fréttirnar og að þær væru alveg æðislegar...það væri nú gaman að fá að sjá nokkrar myndir!!
Þurfum við ekki að hittast eitthvað um jólin?? Aldrei að vita nema ég geti haldið partý!! ....treysti alla vega ekki á neinn annan til þess!
Bless í bili, kv. Rannveig
Sælir strákar, og Rannveig!
Af mér er það að frétta, í stuttu máli, að ég er komin með B.S. gráðuna mína í umhverfisverkfræði og er á leiðinni til Birkis í Köben að taka masterinn í DTU. Ég er þar að auk single og barnlaus (þrátt fyrir nýlegar lagabreytingar ;-) )
Á þessu bloggi hefur nú verið minnst á að halda X-Rvk partý og langar mig endilega til að gera þann draum að veruleika ;-) Svona til að byrja með langar mig að stinga upp á dagsetningunni 14. júlí... hvernig hentar það fólki?? Alveg viku fyrirvari þannig að hægt er að fara að panta sér flug suður eða til landsins ;-)